Monday, June 13, 2005

240876-4230

Ég fékk nafnnúmer í dag og fékk að stofna bankareikning í Nordea Bank og ég þurfti bara að bíða í viku. Svo er gemsanúmerið víst á leiðinni þannig þetta er allt langt fram úr væntingum
Það er ótrúlegt hvað bankareikningur getur gert fyrir andlega líðan. Mér líður bara næstum því eins og ég eigi heima hérna. Ég fór í mollið í dag og eyddi fullt af peningum í föt vegna þess að það var rigning og það var ekkert annað að gera. Ég vona að það rigni ekki mikið meira í sumar, því að þá verð ég fátæk.
Gleðifréttir! Minn heittelskaði fékk vinnu í dag, hann er að fara að vinna á ungdomsklub í Rødovre. Svo erum við að fara að skoða íbúð á morgun og og sækja búslóðina. Svo er ég að fara að búddast annað kvöld og fæ að kynnast dönskum búddum. Nóg að gera!
Nam mjó hó renge kjó

1 comment:

Linda Björk said...

Frábært að heyra - allt á uppleið. Hamingjuóskir til Anders með vinnuna. Krossa fingur fyrir íbúð - vonandi verðið þið komin með eina fyrir september ;)

hasta la vista babe