Friday, September 09, 2005

Au pair

Ég er að fatta hagkvæmni þess að hafa gesti, Linda er búin að vera vaskandi upp síðan hún kom sem mér finnst alveg æðislegt. Ég er eiginlega dáldið leið yfir því að hún fór til Þýskalands, núna þarf ég að vaska upp sjálf. Svo kemur Sigga eftir tvær vikur og ég læt hana ryksuga líka. Svo þarf hver gestur eftir það að toppa það sem síðasti gerði. Það verður þá ægilega hreint hérna um jólin!

2 comments:

Linda Björk said...

thu hefdir alveg getad geymt uppvaskid yfir helgina ;) thad er ad segja ef thu att nog af glosum og svona hehehe

Anonymous said...

Hey það þýðir ekkert að vera setja upp einhverja standarda fyrir gesti. Við sem erum með uppþvottavél og höfum ekki stungið hendi í kalt vatn árum saman getum ekki fylgt þessu eftir.