Tuesday, February 19, 2008

tres

Jæja,þá er litli prinsinn 3 mánaða og í tilefni dagsins virðist hann ætla sofna snemma í kvöld til þess að gleðja móður sína. Hann hefur sofið minna en hann er vanur upp á síðkastið(og svaf ekki mikið fyrir). Hann er svo sniðugur,núna sé ég í hillingum þá gömlu góðu daga þegar hann svaf tvo tíma og verð ægilega þakklát þegar hann byrjar á því aftur. Hann uppgötvaði sína eigin spegilmynd í vikunni og um leið hann sér spegilmyndina þá upphefst hið heitasta daður við þennan myndarpilt í speglinum.
Það kom frétt í blaðinu þess efnis í dag að íslenskir feðgar voru handteknir fyrir að berja kærasta fyrrverandi eiginkonunnar. Blaðamaðurinn var ekkert hissa á barsmíðunum en hann var hissa á því að þeir nenntu að fljúga frá Íslandi til þess að gera það. Góð landkynning þetta,sýnir að íslendingar gera það sem þeir ætla sér þó að þeir þurfi að ferðast 2500 kílómetra til að berja mann og annan:)

1 comment:

Anonymous said...

ég er ekkert hisssa að hann sé hrifin af þessum sæta strák í speglinum. vildi að ég væri að koma með mömmu og pabba í mars til að geta knúsað ykkur. kveðja erna