Wednesday, May 03, 2006

Sumarið komið!

Haldið ekki að sumarið sé komið í Baunalandinu. Það var 20 stiga hiti í dag,alveg ótrúlegt! Ég verð að fara að kaupa sumarföt bráðum. Hafið þið séð þátt sem heitir Felicity,undarlegur þáttur sem virðist snúast um samband tveggja háskólakrakka og vina þeirra. Ég sá þátt um daginn sem var bara absúrd, allir voru búnir að vera með öllum og voru í því að spurja hvorn annan hvort þeir mættu deita þeirra fyrrverandi sem þeir þó höfðu verið með áður. Afar undarlegt en þetta er eins og með bílslys, maður verður að horfa.
Fór á nýjustu Woody Allen myndina, og hún var bara helvíti góð, rosalega öflugir leikarar

2 comments:

Anonymous said...

elsku dúllurnar mínar! innilega til hamingju með brúðkaupsafmælið. knús og kossar frá Íslandi
kveðja Erna og Bent

Ásdís said...

helvíti ertu seig að muna þetta
knús
Ásdís