Tuesday, May 23, 2006

Hvað meinaru!

Ég lenti í slysi númer 2 í gær annan mánudaginn í röð, rann til í bleytu og tók svona Tom Cruise, Mission impossible 3 fall af hjólinu, mjög dramatískt. Mér er hreinlega ekki farið að standa á sama hérna, ég er búin að vera með bílpróf í 12 ár og aldrei lent í neinu fyrr en núna og það eru 2 vikur í röð. Og ég meiddi mig á sömu stöðum í seinustu viku bara aðeins meira í þetta skiptið. Núna er ég með bólgið hné(sömu megin og sama hné og í síðustu viku) og fasta öxl þannig að ég kemst ekki í vinnuna. Það fyndna er að ég var á leiðinni heim til að kaupa lestarmiðann af því ég er svo leið á að keyra þetta. Svo núna verður hann pottþétt keyptur eða ég verð að hætta að mæta í vinnuna á mánudögum(sem er ekki slæm hugmynd). Helvítis helvíti!

4 comments:

Anonymous said...

Hæ frnku beyb Sagt var Mánudagur til mæðu er kanski enn? Mundu allt er þá þrent er þannig að þetta er að ganga yfir Svo er bara að vera vakandi þegar maður er úti ekki sofa á daginn Þú tapaðir júróvísíonSkarpi hans Kjartans er mjög ánægður með gæjana frá Findlandi eins og hann segir með áherslu á déinu Kærlighed og hilse Erna 1

Anonymous said...

hvað er að heyra af þér. þú verður bara að hætta að mæta á mánudögum , það er alveg á hreina.
annars allt gott að frétta af okkur
kveðja Erna og Bent

Anonymous said...

Elsku krúttið mitt ekki klára þig alveg á skooternum farðu endilega varlega.
Sjáumst
kv
MA
XXXXXXX

Linda Björk said...

hélstu þig ekki heima í dag?

Fórstu nokkuð út úr húsi? Hvernig er það annars byrjuð aftur að vinna?

kveðja
wanna be Snæfellsnesingurinn hahah