Monday, June 30, 2008

Enlig mor!

Ég er einleg móðir þessa vikuna, minn heittelskaði fór í sumarbúðir með börnin og kemur ekki fyrr en á föstudag. Ég og júníor erum búin að vera eiturhress í dag, fórum á útsölu í Baby Sam og svo kom hann með mér á snyrtistofuna og fylgdist athugull með fegrunaraðgerðunum.
Multitaskið klikkaði eitthvað hjá mér í dag því að ég setti laukinn í frystinn í staðinn fyrir vorrúllurnar og brenndi grænmetismaukið hans júníor meðan ég baðaði hann. En ting av gangen maður!
Júníor lýsir núna frati á að liggja í balanum í baði, núna vill hann bara sitja og helst klifra upp úr. Ég á eftir að vakna einhvern daginn og þá er hann búinn að klifra upp úr rúminu og elda handa mér ommilettu. Ég sé þetta alveg fyrir mér
!

1 comment:

Anonymous said...

í sturtuna með hann,ef honum kippir í kynið mun hann elda eitthvað gott í framtíðinni handa okkur, er hann að verða lítill skæruliði enn skemmtilegt.
kv og knús
Amma