Monday, January 23, 2006

Glöð!

Æi hvað ég er glöð í dag! Ég mætti samviskusamlega í vinnuna í morgun og fékk að vita það að ég átti að vera á kúrsus í dag sem mér fannst ekkert nema sniðugt. Þannig að ég fékk að sitja inní í hitanum í dag og hafa það huggulegt að hlusta á fyrirlestra. Það gerist bara ekki betra held ég.
Ég ætla að rölta niður í bæ og kaupa andlitskrem, andlitið er við það að detta af mér vegna þurrks og kulda. Þegar eiginmaðurinn er farin að kommenta að maður líti ekki eins vel út eins og maður gerir vanalega(hann tekur aldrei eftir neinu) þá þarf maður að fara að gera eitthvað í þessu. Ég ætla að finna mér krem sem yngir mig um 10 ár og gerir mig geðveikt hamingjusama(þar að segja hamingjusamari:).
Það er örugglega ekkert mál!

2 comments:

Anonymous said...

Kremin eru góð en fegurðin kemur að innan elskan mín þú ert alltaf ein af þrem fallegustu stelpunum í heiminum enda dóttir mín beauty is ok brain is more.
kv
MA xxxxx

Linda Björk said...

hey thu ert alltaf jafn saet