Sunday, October 22, 2006

Bavíanar

Þetta er búin að vera geðveik helgi, ég er búin að vera vinna eins og bavíani. Ég tók tvöfalda vakt á föstudaginn,dagvakt á gamla staðnum og kvöldvakt á nýja staðnum og svo er ég búin að vera helgina á gamla staðnum plús að standa í framkvæmdum heimafyrir og ég tala nú ekki um heimavinnuna. Minn heittelskaði er búinn að vera á útopnu hérna á heimafrontinum, setja saman skápa, brjótandi niður veggi og þar fram eftir götunum. Við erum komin með hurðargat frá eldhúsi inn í stofu og það er flottara en við vorum búin að reikna með. Það gefur mikið meira ljós í íbúðina og gerir hana stærri á alla vegu. Næsta verkefni á dagskrá er svo að ráðast á eldhúsinnréttinguna. Við dugleg!

2 comments:

Linda Björk said...

hvenær koma svo myndirnar? Eða þarf maður kannski bara að gera sér ferð til þess að sjá?

kveðja
Linda Björk

Anonymous said...

Sko til dugleg bara það verður þá gott að hvíla sig hjá mömmu um Jólin. Skoðaðu cafesigrun.com.
kv
MA