Saturday, August 11, 2007

Speltlandið góða

Ég er mætt aftur á svæðið eftir tímabil sögulegrar bloggleti! Ég var í mánuð á Íslandi og fór mestur tíminn í margvíslegar matarrannsóknir, besti sjeikinn er til dæmis í Vestmannaeyjum og besta pizzan hjá Pizza Company á Laugarveginum. Einnig var talsverðum tíma eytt í nammiát og ég verð bara að segja að íslenskt nammi er bara það besta í heimi. Það var líka smá bætt á sig í sumarfríinu, kíló fyrir mig og kíló fyrir júníor. Reyndar las ég einhversstaðar að hann bætti í "rauninni" á sig 200 grömmum á þessu tímabili en við látum það liggja milli hluta. Fór reyndar til læknisins í síðustu viku í vigtun og þrátt fyrir allt átið þá var ég í bullandi meðalmennsku, ekki of feit eða mjó miðað við bumbustærð. Speltmenningin fannst mér gífurlega skemmtileg og þegar ég fann speltpylsubrauðin frá Myllunni í Bónus þá íhugaði ég það í andartak að flytja heim. En svo las ég fasteignablaðið og hætti við. Ég hef ákveðið að stofna sjóð og fara að leggja fyrir svo að ég geti flutt heim. Ég hef reiknað út að ég þurfi svona 65 milljónir í reiðufé, 50 millur í húsið, 5 í innréttingar,5 í jeppann og seinustu 5 í hjólhýsið sem ég ætla að drösla um allt land vegna þess að ég nenni ekki að vera heima í 50 milljón krónu húsinu mínu. Ég læt ykkur vita hvernig gengur með söfnunina, þeir sem eiga einhverjar millur eftir í fasteigninni sinni(sem þeir hafa ekki eytt í Landcruiserinn og hjólhýsið) geta lagt inn á mig pening. Hafið bara samband. Ásdísi heim!!!
Þeir frestuðu hjá mér skólanum um eina viku þannig að það er auka vika í sumarfrí. Ég er búin að gera jóla og páskahreingerninguna í dag og búin að kaupa nautasteik handa mínum heittelskaða sem kemur heim á morgun eftir viku útlegð í Svíþjóð. Ég verð nú bara að segja það , það er leitun að betri eiginkonum en mér!!

4 comments:

Linda Björk said...

iss piss - hefur ekkert að gera með hjólhýsi ef þú átt jeppa... ég meina þú getur ekki dragnast með hann um hálendið þegar við förum þangað. Alveg ómöglegt að fara með hjólhýsi yfir ár.... gengur ekki! Þannig að sparar þér hva 5 millur? :)

Anonymous said...

Heyrðu, þetta hljómar eins og mjög gott og göfugt plan hjá þér... ég skal gefa þér hálfa millu, allt fyrir málstaðinn

gaman að heyra frá þér aftur og gott að vita að þið eruð að dafna vel. Bið að heilsa ykkur

Anonymous said...

Hæ frænku beyb
Gott að sjá frá þér aftur þú talar um hann ekki hana eða það er það HANN þú verður ekki í vandræaðum með söfnuninna svo þarf nú ekki svona flott og lankrúser færðu ekki að kaupa takk fyrir aða vera til Knús og Kveðjur Erna1

Linda Björk said...

Til hamingju með afmælið mín kæra :) vonandi nýtur þú dagsins í botn.

kveðja
Linda Björk