Saturday, April 25, 2009

hvítlaukur!

Byrjaði í verknámi í vikunni so no more school í heilan mánuð,sjálfsögðu verkefni en ekki heimavinna. Ég var mjög heppin og komst í verknám bara við hliðina á þar sem ég bý. Þetta er heimili fyrir unglinga frá 14-18 sem eru í vandræðum og geta ekki búið heima hjá sér lengur. Þetta er vægast sagt áhugavert en mjög erfitt samtímis, það er meira en að segja það að komast inn á gafl hjá þessum elskum. Sem er ekkert skrítið við miðað við hvernig þeirra bakgrunnur er. Ég er að vona að ég fái puttana í einhver af þeim í næstu viku. Starfsfólkið er frábært og hefur tekið mjög vel á móti mér.
Minn heittelskaði skrapp til Belgíu í gær á ráðstefnu og ég fékk mér au-pair yfir helgina. Tengdó Sigrún bauð sig fram í jobbið og er búin að standa sig eins og hetja, hún eldaði hvítlaukssúpu(bara 40 hvítlauksgeirar,jummí),geðveikt góð. Við erum vel varin fyrir vampírum og kvefpestum næsta mánuðinn.

1 comment:

Anonymous said...

HÆ ÞÚ YNDISLEGUST hvernig er þetta verður þú með kennararéttindi í hinum ýmsustu greinum Danir gefa þér meiraaðsegja 12 hélt að 10 væri best en kanski er þetta besabest þú flottust til hamingju með þetta allt elskurnar mínar sóklskinskveðjur af klakanum sem er að vakna Erna1