Monday, May 19, 2008

Posted by Picasa

Thursday, May 15, 2008

Minnesota nice!

Núna fer að líða að lokum ferðarinnar, við fljúgum heim á laugardagskvöldið. Við höfum spilað Settlers af miklum krafti í þessari viku(Kort hjónin kynntu okkur fyrir þessari hættulegu fíkn á sínum tíma) og fyrir kurteisis sakir höfum við hjónin tapað alla vikuna. Við viljum byggja þau upp áður en við förum að taka á þeim af einhverju viti:). Það er búið að vera yndislegt að vera hérna og Minnesota er alveg frábært fylki, hér gæti ég sko búið. Við fórum í smá bíltúr í gær til Stillwater sem er lítill,krúttlegur bær við Missisippi ána í 20 stiga hita og nutum lífsins. Það sem kemur mér mest á óvart við þessa ferð er hvað Kanarnir eru svínslega kurteisir, vinalegir og hjálpsamir. Þeir eru ótrúlegir, þeir segja how are you doing today? í súpermarkaðnum og meina það. Ég varð dáldið hvumsa fyrst yfir svona persónulegri spurningu og hvað ég átti eiginlega að segja en núna er ég sjóuð í þessu og spyr meira segja til baka. Maður er heppinn ef þeir segja hæ á Íslandi. Ég var úti að hjóla um daginn og stoppaði á gatnamótum til að kíkja á kort, það stoppaði maður bílinn sinn og hoppaði útúr honum af einskærri gleði yfir að fá að hjálpa mér að rata þangað sem ég var að fara og hvernig ég ætti svo að komast heim. Ég labbaði fram hjá smurstöð um daginn með Leó og það var einn gaur að vinna fyrir utan , og það var að sjálfsögðu, how are you doing today?. Þeir heilsa ókunnugu fólki, mjög skemmtilegt. Gísli sagði mér reyndar að í Minnesota þá eru þeir ekstra friendly af einhverjum ástæðum. Það hlýtur að vera eitthvað í vatninu.

Tuesday, May 13, 2008

All you can eat

Haldið ekki að mín hafi farið út að hlaupa í dag, og ástæðan var einfaldlega sú að ég var búin að kaupa nýtt hlaupasett og nýja hlaupaskó. Ég var búin að reikna það út að ég eyddi nógu miklum peningum í nýtt hlaupadót þá þyrfti ég að fara og það reyndist raunin. Auja dró mig hringinn í kringum vatnið, ég náði tæpum 2 k sem er nokkuð gott miðað við að ég hef ekki hlaupið nokkurn skapaðann hlut í nokkur ár. Það var líka stigið á vigtina og ástandið var ekki eins slæmt og ég hélt miðað við óheilsusamlegt líferni undanfarinn mánuð. En ég ætla að fara á vigtina þegar ég kem heim svo ég geti tilkynnt réttar tölur. Leó er farinn að fá graut og líkar alltí lagi, held að hann sjái ekki alveg tilganginn með þessu, brjóst er mikið hentugra. Við hjónin fórum á deit í gær og fórum á all you can eat sushi stað. Þar sest maður fyrir framan barborð og svo flýtur sushiið framhjá manni í litlum bátum og svo treður maður í andlitið á sér. Svona all you can eat er ekki sniðugt, við gátum varla labbað útaf staðnum vegna græðgi

Saturday, May 10, 2008

Ágústa snúlla


Minneapolis

Ég hef ekki komist til ad blogga vegna alvarlegrar verslunaráráttu, en bankareikningurinn er ad tæmast,þannig ad við verðum ad hætta bráðum. Hér er allt stjarnfræðilega ódýrt og maður er alltaf ad gera geðveikan díl að manni finnst sjálfum allaveganna. Við erum í góðu yfirlæti hjá Kort hjónunum og við erum búin að finna konu handa Leó. Þau eiga litla 9 mánaða snúllu sem heitir Ágústa sem okkur líst nokkuð vel sem tengdadóttur.
Við erum búin að skemmta okkur konunglega, Minneapolis er alveg frábær borg, með stöðuvötnum og flottum görðum. Við fórum á háameríska háskólaútskrift sem var rosa gaman, þau sýndu okkur Campusinn og það er alveg greinilegt að háskólinn hefur aðeins meiri peninga milli handanna en á Íslandi. Enda er háskólinn í Minnesota,sá annar stærsti í landinu með 45.000 nemendum og sitt eigið lögreglulið. Við fórum á brasilískt steikhús í vikunni sem var alveg magnað, það labba um 10 þjónar með allar tegundir af kjöti á spjótum og svo er maður með spjald sem maður snýr við og þá koma þeir hlaupandi í unnvörpum og bjóða manni. Alveg geggjað, bara 6 mismunandi tegundir af nautakjöti, kjúlli, svín,lamb og pulsur. Geðveikt gott, besta nautakjöt sem ég hef fengið og það verður erfitt að toppa þetta.
Leó er eiturhress, er farinn að snúa sér á magann, þvílík læti!

Tuesday, May 06, 2008

Akron

Vid lentum i Akron um eftirmiddaginn, Akron er frekar dull baer, astaedan fyrir ad vid keyrum her i gegn er ad husid hans Dr.Bob(annar AA guru) er herna og Anders langar ad kikja a thad. Vid fengum alveg frikad hotelherbergi, af einhverjum astaedum vorum vid upgraded i executive suite. Hotelherbergid var jafn stort og ibudin okkar heima med stofu og alles. Hotelid var gomul verksmidja og their gerdu herbergi i gomlu silounum thannig ad oll herbergin eru kringlott. Og svo var rumid ekki af verri endanum. Vid hjonin voru sammala um ad naesta rum verdur king size. Vid hugsudum okkur lika gott til glodarinnar af thvi ad morgunmaturinn atti ad vera hot buffet og vid saum fyrir okkur egg og beikon og svoleidis gummeladi. En nei, thvilik vonbrigdi, thad var hafragrautur og sweet biscuits med gravy, algjor vidbjodur. Vid erum opinberlega buin ad gefast upp hotelmorgunmat i Amerikunni. Daginn eftir skrapp Anders til Dr. Bob og eg huggadi mer a kaffihusi thar sem maturinn var bara mjog godur, vid vorum mjog hissa. Kaffihusid hafdi mjog fallegt nafn Angel Falls og thjonarnir voru allir haltir.

Saturday, May 03, 2008

2.mai

Leo fekk morgunsundsprett i pottinum og fannst thad hin besta skemmtun. Sidan forum vid i dyragardinn og thar voru ljon, tigrisdyr,birnir, apar og margt fleira. Dyragardar eru alltaf daldid blendin skemmtun fyrir mig, mer finnst their half sorglegir serstaklega thegar thad eru ljon og tigrisdyr sem eiga engan veginn heima her. Thad a ad senda thessi dyr heim til sin.
Vid keyrdum sidan upp i Laurel Highlands, thar er mjog merkilegt hus arkitekturlega sed sem heitir Falling Water. Thad er byggt ofan a fossi og thad er eins og vatnid komi innan ur husinu. Thad er haegt ad kikja a thad her http://www.paconserve.org. Vid reyndum ad komast inn en thad er bannad bornum innan 6 ara. Eg sa ekki alveg hvad hann Leo minn hefdi att ad gera af ser inn i husinu en svona er thetta. Thannig ad vid kiktum utan a husid i stadinn.
Sidan keyrdum vid til Akron.

1.mai

Vid svafum i nott i Reading i Pennsylvaniu, vid aetludum ad keyra lengra en meikudum ekki meir. Vid erum buin ad vanmeta adeins thessar vegalengdir sem vid aetludum ad keyra, thetta land er svo helviti stort, thannig ad vid verdum ad skrufa nidur metnadinn adeins.
Eftir undarlegan Continental breakfast tha heldum vid af stad ad kikja a Amish folkid. Mjog skemmtilegt ad sja folk trottandi um sveitirnar i hestvognum med stefnuljosi og allir i eins fotum. Thad eru mjog undarlegar thversagnir i theirra lifsstil, sjonvarp og rafmagn er bannad en ma nota vasareikni, ma ekki eiga bil en thad ma leigja hann odru hvoru. Simi er bannadur inn i husinu en hann ma vera ut a veg. Their verda nota hesta ut a okrunum en mega hengja nytisku landbunadargraeju aftan i tha. Very strange. Vid forum svo i nokkrar minjagripabudir og fengum svo alveg skelfilegan hadegismat. Vid hofum reyndar upplifad hvad eftir annad vondan mat i thessari ferd. Thad er haegt ad fa skyndibita i ollum staerdum og gerdum en thad er erfitt ad finna almennilegan mat. Eini godi maturinn sem vid hofum fengid var a indverskum veitingastad i Mount Kisco. Thad er lika erfitt ad finna eitthvad almennilegt i supermorkudum(fyrir mig en eg er picky), braudid er vidbjodur,kjotid er undarlegt, allar mjolkurvorur disaetar og e-efni daudans allsstadar. Thad er ekki skrytid ad Kanar seu yfirleitt vannaerdir/feitir. Thad tharf einhver ad taka sig til og flytja inn Sollu i Graenum Kosti og lata hana predika yfir lydnum.
Vid keyrdum fra Amish Country nordur til Pittsburgh og akvadum ad keyra sveitavegi i stadinn fyrir hradbrautina. Thad var otrulega fallegt,skogur, fjoll og kvoldsol. Vid fundum bjalkakofa motel vid hlidina a litlum dyragardi. Vid fengum okkur herbergi med heitum potti. Potturinn er 1.5 metra fra ruminu, mjog fyndid:) Sidan sofnadi madur ut fra ljona og tigrisdyraoskrum.

30.april

Vid kvoddum Adam og Karry og keyrdum til Stepping Stones(http://www.steppingstones.org/) sem er i uppsveitum New York, husid hans Bill Wilson er mjog huggulegt, vaeri alveg til i ad bua tharna. Minn heittelskadi var svo heppin ad fa einkatur med leidsogukonunni, hopurinn sem pantadi thann daginn aflysti. Hann fekk ad sitja vid bordid thar sem Bill vard edru og sitja vid skrifbordid thar sem hann sat og skrifadi AA bokina og 12 og 12. Eins og thid getid imyndad ykkur tha sveif minn madur af einskaerri gledi eftir thessa heimsokn. Mer fannst thetta svosum agaetlega merkilegt en ekki eins og honum. Sidan brunudu vid sudur a boginn til Pennsylvaniu

Wednesday, April 30, 2008

Jibbi!!

Eg er ordin modursystir, Erna atti strak i nott:))))))))
Vid erum ad leggja af stad i the roadtrip. Anders for inn i New York, eg var threytt og atti rolegan dag med Leo heima. New York er heldur ekki serstaklega barnvaen, mjog erfitt ad vera i lestunum med barnavagn til daemis. En New York buar eru mjog kurteisir og hjalpsamir sem kom a ovart. Vid vorum buin ad heyra annad.Eg kem til New York seinna barnlaus. Karry passadi Leo i gaerkvoldi svo vid hjonin komumst a fund sem var algjort aedi. Nuna keyrum vid a aedislega Dodginum okkar upstate New York og heimsaekjum Stepping Stone. Thar atti Bill Wilson stofnandi AA samtakana heima. Eftir thad keyrum vid til York og kikjum a Amish folkid.
ciao

Monday, April 28, 2008

Baerinn sem vid buum i er eins og snytt ut ur Desperate Housewives, kruttleg hus med verond. Vid erum langt ut i sveit og thad er otrulega fallegt herna. Wal mart var ekkert serlega skemmtilegt, alltof stort og saug ut ur manni alla orku, thad er alveg otrulegt hvad amerikanar eta mikid af crap mat. Oendanlegt frambod af matsolustodum, madur upplifir bullandi valkvida thegar madur tharf ad akveda hvad madur a ad borda. Vid forum inn i New York,alveg svakaleg borg, forum a Greenwich Village og Times Square. Okkur la vid flogaveiki a Times Square, thessi blikkandi auglysingaskilti voru hreinlega othaegileg. Village var mjog huggulegt og ad sjalfsogdu rakumst vid a islending sem thekkti Anders thar a kaffihusi. Madur er hvergi ohultur fyrir samlondum sinum:). Vi sottum bilaleigubilinn i dag og erum a gifurlega toff Dodge Adventure, draumadrossiu. Planid er ad fara aftur inn i New York a morgun og kikja a Central Park og nagrenni

Saturday, April 26, 2008

New York,New Jersey

Tha erum vid maett i Amerikuna, Adam sotti okkur a flugvollinn i gaerkvoldi. Sem betur fer segi eg thvi ad thad er ekkert grin ad komast ut ur JFK. Hann for med okkur i sma sightseeing inn a Manhattan, gedveikt flott ad sja allar thessar byggingar i kvoldsolinni. Mjog frikad ad koma inn a Manhattan thvi ad byggingarnar eru svo haar ad madur faer innilokunartilfinningu, thad eru bara langir gangar ut um allt. En vid konnum New York betur a manudag og thridjudag. Vid erum hja Adam og Karry, thau eiga 3 born og bua i New jersey svona 1.5 tima fra New York. Thau bua thad langt ut i sveit ad thau laesa ekki hurdinni hja ser a nottinni. Thad atti eg ekki von a ad sja i USA. Vid fengum egg og beikon i morgunmat ad sjalfsogdu:) og erum a leidinni i Walmart.

Monday, April 14, 2008

nammnamm!

Það er kominn ferðahugur á þessum bæ, við komum til Íslands á laugardag og förum til New York þann 25 apríl. Ég hlakka til að fara í saumaklúbbinn minn sem ég hef verið síðan ég var 15 ára held ég. Ég tel mig ennþá vera meðlim þó að ég hafi ekki mætt nema einu sinni til tvisvar á ári síðan ég flutti til Danmerkur. Það er ókostur við Baunalandið að maður kemst ekki í saumaklúbb.Þeir vinir sem maður eignast í grunnskóla eru öðruvísi en vinir sem maður eignast seinna meir. Það er eins og það skipti ekki máli hvort eða hversu lengi maður er í burtu, það er alltaf sama tengingin samt sem áður. Það verður æðislegt að hitta vinkonurnar með börnum og mökum á sunnudaginn, sýna nýjustu afkvæmin og slúðra aðeins. Ég er búin að fá matseðilinn og það eru brauðtertur, heitir réttir, súkkulaðikökur og rice krispies og fullt af öðru gúmmelaði. Mmmm(:

Tuesday, March 18, 2008

Gæi!


Thursday, March 13, 2008

Netmubla

http://www.dba.dk/asp/soegning/detail.asp?annonceid=54055964

Í fréttum er þetta helst

Hér hefur verið mikið líf í tuskunum! Aupair-foreldrarnir eru komnir og farnir, það var alveg svakaleg útskriftarveisla síðustu helgi og svo framleiðis.. Það var gífurlega notalegt að fá afa og ömmu í heimsókn en eini gallinn er að þau eru mjög fitandi í sambúð. Það var bakkelsi á hverjum morgni og veislumatur á hverjum degi, og ekki má gleyma bingókúlunum og lakkrísnum sem rann ljúflega niður. Ég gæti náttúrulega tekið smá ábyrgð á eigin lífi og beðið þau um að koma ekki með nammi næst og við gætum fengið okkur herbalife í morgunmat en neibbs! Kemur ekki til greina! Ég verð bara að massa þetta í ræktinni.
Við hjónin erum með mublumaníu og reyndar líka mjög upptekin af flatskjám. Við skruppum í Ikea í dag og fundum engar mublur sem okkur langaði í en við keyptum bara fullt af barnadóti. Það fer nefnilega að líða að því að Leó töffari fái sitt eigið herbergi. Okkur finnst líka kominn tími til að hann fari nú að taka sig saman í andlitinu og leggi eitthvað til heimilisins svo hann er búinn að fá blaðburðarjobb og byrjar í næsta mánuði. Vinnan göfgar manninn og allt það!
En við hjónin neituðum að játa okkur sigruð í mublunum og keyptum bara mublu á netinu í staðinn..hehehe Ikea hvað!

Hissa!

Thursday, February 28, 2008

Hneyksl!

Ég var að lesa að hollenskur banki ætli að hætta að gefa börnum sparigrísi því að múslimar eru eitthvað móðgaðir yfir því að þetta er svín. Í alvöru talað!! Hvað kemur næst? Kannski fara kvenkyns starfsmenn bankans að ganga með slæðu í vinnunni af því að múslimar krefjast þess! Þetta er nú meira ruglið. Eins og íslam er nú falleg trú í bókinni þá finnst mér múslimar oft ekki sérlega umburðalyndir gagnvart því að hlutirnir séu öðruvísi í hinum vestræna heimi.

Monday, February 25, 2008